Þess vegna er allt sem við gerum í samræmi við loforð okkar um meðferð persónuupplýsinga
Tökum minna
Við leggjum áherslu á að vita minna um þig
Öll tæknifyrirtæki safna gögnum til að bæta vörur sínar. En til þess þarf ekki svona mikið af persónulegum upplýsingum þínum. Einu gögnin sem við viljum eru gögnin sem þjóna þér á endanum. Við spyrjum okkur: þurfum við þetta í raun og veru? Til hvers þurfum við það? Og hvenær getum við eytt þessu?
Höldum því öruggu
Við leggjum mikla vinnu til að vernda persónulegar upplýsingar þínar
Gagnaöryggi er flókið - eða ætti að minnsta kosti að vera það. Þess vegna leggjum við aukna áherslu á að flokka gögnin sem við höfum, viðhöldum reglum um hvernig við geymum og vernda hverja tegund gagna og hættum aldrei að endurskoða ferlana okkar. Við setjum friðhelgi þína í forgang. Við fjárfestum í því. Við erum staðráðin í því. Við kennum jafnvel öðrum fyrirtækjum hvernig á að gera það.
Engin leyndarmál
Þú munt alltaf vita hvernig þú stendur gagnvart okkur
Hér er enginn dulinn tilgangur. Viðskipti okkar eru ekki háð því að misnota traust þitt í leyni. Persónuverndarstefnan okkar er í rauninni læsileg. Hver sem er í heiminum getur sótt vikulega fyrirtækjafundi okkar. Ef þú vilt grafa niður í alla gagnapunktana sem við söfnum, þá er kóðinn okkar opinn. Og það erum við líka.
-
Af hverju að treysta Firefox?
Vegna þess að við setjum fólk í fyrsta sæti. Reyndar erum við studd af sjálfseignarstofnun án hagnaðarsjónarmiða. Frá fyrsta degi hefur það verið verkefni okkar að vernda internetið og alla á því.
-
Persónuvernd þín, innbyggð í hugbúnaðinn
Firefox hugbúnaður virkar öðruvísi - vegna þess að hann er fyrst og fremst hannaður til að vernda friðhelgi þína.